Serbneskur danshöfundur í Sláturhúsinu

Milos Sofrenovic, dansari og danshöfundur, dvelur um þessar mundir í Kaffistofunni, listamannaíbúð Sláturhúsins, á vegum Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs. Milos er ættaður frá Serbíu, lærði í Englandi en býr í Austurríki og vinnur um allan heim. Milos hefur lengi dreymt um að komast til Íslands.

Milos er danshöfundur og vinnur að nýju verki á meðan á dvöl hans stendur, en einnig sýnir hann eldra verk bæði á Egilsstöðum og á Seyðisfirði. Milos heldur námskeið fyrir nemendur LungA skólans á Seyðisfirði og unga leikara á Egilsstöðum, auk þess sem hann heldur fyrirlestur fyrir nemendur listnámsbrautar Menntaskólans á Egilsstöðum.

Koma Milos er liður í verkefni Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs sem felst í því að bjóða innlendu og erlendu sviðslistafólki að koma og vinna að verkum sínum á Austurlandi. Með það að markmiði að efla faglegt umhverfi sviðslista hér á svæðinu með samvinnu heimamanna og þeirra listamanna sem hingað koma.

Meira um listamanninn má sjá hér https://www.facebook.com/milos.sofrenovic?fref=ts og hérhttps://vimeo.com/user7765041.