Samningur vegna byggingastjórnunar og –eftirlits vegna hjúkrunarheimilis á Egilsstöðum undirritaður

Föstudaginn 11. janúar 2013 undirrituðu Björn Ingimarsson bæjarstjóri og Skarphéðinn Smári Þórhallsson, framkvæmdastjóri starfsstöðvar Mannvits á Egilsstöðum, verksamning um byggingastjórnun og eftirlit vegna byggingar hjúkrunarheimilis á Egilsstöðum.

Gengið var til samninga við Mannvit að undangenginni verðkönnun á meðal verk- og tæknifræðistofa í sveitarfélaginu og er reiknað með að verktími framkvæmda muni geta staðið til loka árs 2014.