Samkeppni um nafn á nýtt hjúkrunarheimili á Egilsstöðum

Byggingarnefnd hjúkrunarheimilisins á Egilsstöðum auglýsir hér með eftir nafni á nýja hjúkrunarheimilið við Blómvang 1.

Tillögur að nafni, ásamt rökstuðningi, skulu sendar byggingarnefnd í pósti merkt Byggingarnefnd hjúkrunarheimilis Nafnasamkeppni, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir. Tillögurnar sendist inn undir dulnefni, en rétt nafn höfundar fylgi með í lokuðu umslagi.

Byggingarnefndin áskilur sér rétt til að velja hvaða tillögu sem er eða hafna öllum.
Skilafrestur er til 20. janúar 2015.