Samkeppni um einkennismerki Fellaskóla

Myndin er fengin af vefnum pexels.com
Myndin er fengin af vefnum pexels.com

Þau í Fellaskóla langar að blása til samkeppni um einkennismerki (logo) fyrir skólann. Öllum er boðið að vera með og senda inn tillögu um einkennismerki skólans. Verðlaun eru í boði.

Merkið verður notað á kynningarefni skólans, á heimasíðu, bréfsefni, fána og fleira sem viðkemur skólanum.

Frestur til að skila tillögum er til 10. janúar.

Tillögur berist til Fellaskóla undir dulnefni og rétt nafn í lokuðu umslagi fylgi með.

Umsjón og dómnefnd er í höndum skólaráðs Fellaskóla.

FELLASKÓLI
Fellabæ,
700 Egilsstaðir