Samfélagssmiðjan í mars – verið velkomin

Viðtalstímar kjörinna fulltrúa og starfsfólks stjórnsýslu Fljótsdalshéraðs í Samfélagssmiðjunni að Miðvangi 31 (þar sem Fóðurblandan var), verða í mars með eftirfarandi hætti, á fimmtudögum, milli klukkan 14 og 18. Samfélagssmiðjunni er ætlað að vera vettvangur íbúa sveitarfélagsins til að koma sínum hugmyndum og athugasemdum á framfæri. Þar verða starfsfólk og kjörnir fulltrúar til skrafs og ráðagerða, alltaf með heitt á könnunni.
Vakin er athygli á því að starfsfólk Umboðsmanns barna verður með aðstöðu í Samfélagssmiðjunni dagana 9.-13. mars. Boðið er upp á opið hús fimmtudaginn 12. mars þar sem starfsfólk Umboðsmanns barna ásamt kjörnum fulltrúum Fljótsdalshéraðs og starfsfólki verður til viðtals frá klukkan 14:00.

Samfélagssmiðjan fimmtudaginn 5. mars

Klukkan 14 til 16 – Kristjana Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi og fulltrúi í umhverfis- og framkvæmdanefnd og Hrund Erla Guðmundsdóttir, skjalastjóri og starfsmaður jafnréttisnefndar.

Klukkan 16 til 18 – Gunnar Jónsson, bæjarfulltrúi og formaður stjórnar Hitaveitu Egilsstaða og Fella og Aðalsteinn Þórhallsson, framkvæmdastjóri Hitaveitu Egilsstaða og Fella.

Samfélagssmiðjan fimmtudaginn 12. mars

Klukkan 14 til 16 – Anna Alexandersdóttir, formaður bæjarráðs og formaður félagsmálanefndar og Helga Guðmundsdóttir, fræðslustjóri og Umboðsmaður barna.

Klukkan 16 til 18 – Berglind Harpa Svavarsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður fræðslunefndar og Júlía Sæmundsdóttir, félagsmálastjóri og Umboðsmaður barna.


Umboðsmaður barna í Samfélagssmiðjunni 

Umboðsmaður barna flytur skrifstofu embættisins til Egilsstaða vikuna 9.-13. mars. Markmið flutninganna er að hitta þá sem starfa að málefnum barna í Fljótsdalshéraði og heimsækja skóla á svæðinu. Þó sameining sveitarfélaganna á svæðinu hafi ekki tekið formlegt gildi leggja starfsmenn embættisins einnig leið sína til Seyðisfjarðar, Djúpavogs og Borgarfjarðar eystri.

Umboðsmaður barna og starfsmenn embættisins hafa starfsaðstöðu í Samfélagssmiðjunni (Blómabæjarhúsinu), húsnæði á vegum Fljótsdalshéraðs, á meðan á dvölinni stendur. Þá verður opið hús eftir hádegi fimmtudaginn 12. mars í Samfélagssmiðjunni fyrir íbúa sveitarfélagsins sem það kjósa.

Það er von umboðsmanns barna að þessi nýbreytni mælist vel fyrir og ráðgerir embættið að flytja starfsemi sína í viku til Ísafjarðar næsta haust með sama markmið að leiðarljósi. Auk þess eru styttri heimsóknir í sveitarfélög á SV-landi í bígerð á næstu mánuðum, m.a. í Reykjanesbæ.

„Þessari hugmynd var strax vel tekið af forsvarsmönnum Fljótsdalshéraðs og sveitarfélagið útvegar okkur starfsaðstöðu á meðan á dvölinni stendur. Þá hefur verið skipulögð mjög flott dagskrá fyrir okkur. Við erum því mjög spennt fyrir ferðinni og erum viss um að þetta muni efla mjög tengsl okkar við sveitarfélagið og íbúa þess. Það verður mjög gaman að kynnast því öfluga starfi sem þarna er unnið í þágu barna, hitta börn á öllum aldri og fulltrúa úr ungmennaráði sveitarfélagsins,“ segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna.

Hlutverk umboðsmanns barna er að efla þátttöku barna í samfélaginu og vinna að því að tekið sé fullt tillit til réttinda, þarfa og hagsmuna þeirra á öllum sviðum.

Samfélagssmiðjan fimmtudaginn 19. mars

Klukkan 14 til 16 – Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður atvinnu- og menningarnefndar og Bylgja Borgþórsdóttir, verkefnastjóri íþrótta-, tómstunda- og forvarnamála.

Klukkan 16 til 18 – Hannes Karl Hilmarsson, bæjarfulltrúi og Freyr Ævarsson, verkefnastjóri umhverfismála.

Samfélagssmiðjan fimmtudaginn 26. mars

Klukkan 14 til 16 – Aðalsteinn Ásmundsson, bæjarfulltrúi og fulltrúi í umhverfis- og framkvæmdanefnd, og Óðinn Gunnar Óðinsson skrifstofustjóri.

Klukkan 16 til 18 – Benedikt Hlíðar Stefánsson, formaður umhverfis- og framkvæmdanefndar og Júlía Sæmundsdóttir félagsmálastjóri.