Samfélagssmiðjan í febrúar

Viðtalstímar kjörinna fulltrúa og starfsfólks stjórnsýslu Fljótsdalshéraðs í Samfélagssmiðjunni að Miðvangi 31 (þar sem Fóðurblandan var), verða í febrúar með eftirfarandi hætti, á fimmtudögum, milli klukkan 14 og 18. Samfélagssmiðjunni er ætlað að vera vettvangur íbúa sveitarfélagsins til að koma sínum hugmyndum og athugasemdum á framfæri. Þar verða starfsfólk og kjörnir fulltrúar til skrafs og ráðagerða, alltaf með heitt á könnunni.

Samfélagssmiðjan fimmtudaginn 6. febrúar
Klukkan 14 til 16 – Anna Alexandersdóttir, formaður bæjarráðs og formaður félagsmálanefndar og Freyr Ævarsson, verkefnastjóri umhverfismála.

Klukkan 16 til 18 – Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður atvinnu- og menningarnefndar og Óðinn Gunnar Óðinsson, skrifstofustjóri.

Samfélagssmiðjan fimmtudaginn 13. febrúar
Klukkan 14 til 16 – Berglind Harpa Svavarsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður fræðslunefndar og Bylgja Borgþórsdóttir, verkefnastjóri íþrótta-, tómstunda- og forvarnamála.

Klukkan 16 til 18 – Aðalsteinn Ásmundsson, bæjarfulltrúi og fulltrúi í umhverfis- og framkvæmdanefnd og Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, skipulags- og byggingafulltrúi.

Samfélagssmiðjan fimmtudaginn 20. febrúar
Klukkan 14 til 16 – Björg Björnsdóttir, bæjarfulltrúi og fulltrúi í fræðslunefnd og Guðlaugur Sæbjörnsson, fjármálastjóri.

Klukkan 16 til 18 – Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar og formaður náttúruverndarnefndar og Hrund Erla Guðmundsdóttir, skjalastjóri og starfsmaður jafnréttisnefndar.

Samfélagssmiðjan fimmtudaginn 27. febrúar
Klukkan 14 til 16 – Kristjana Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi og fulltrúi í umhverfis- og framkvæmdanefnd og Kjartan Róbertsson, yfirmaður Eignasjóðs.

Klukkan 16 til 18 – Benedikt Hlíðar Stefánsson, formaður umhverfis- og framkvæmdanefndar og Björn Ingimarsson, bæjarstjóri.