Viðtalstímar kjörinna fulltrúa og starfsfólks stjórnsýslu Fljótsdalshéraðs í Samfélagssmiðjunni að Miðvangi 31 (þar sem Fóðurblandan var) verða sem hér segir í vikunni 23.-26. september.
Mánudaginn 23. september verða til viðtals frá fjölskyldusviði þær Júlía Sæmundsdóttir, félagsmálastjóri, og Berglind Harpa Svavarsdóttir, formaður fræðslunefndar og bæjarfulltrúi, milli kl. 15 og 18.
Á þriðjudaginn, 24. september, verða til viðtals milli kl. 15 og 18 þeir Guðlaugur Sæbjörnsson, fjármálastjóri og Gunnar Jónsson, bæjarfulltrúi og formaður stjórnar Hitaveitu Egilsstaða og Fella.
Fimmtudaginn, 26. september, verður hægt að hitta Bylgju Borgþórsdóttur, verkefnastjóra íþrótta-, tómstunda- og forvarnamála og fulltrúa ungmennaráðs, milli kl. 15 og 18.
Samfélagssmiðjunni er ætlað að vera vettvangur íbúa sveitarfélagsins til að koma sínum hugmyndum og athugasemdum á framfæri. Þar verða starfsfólk og kjörnir fulltrúar til skrafs og ráðagerða, alltaf með heitt á könnunni. Gert er ráð fyrir að í vetur verði þrír viðtalstímar kjörinna fulltrúa og starfsfólks í viku hverfi, þ.e. á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 15 og 18.
Einhverjar breytingar kunna þó að verða frá þessu viðveruplani, vegna fjarveru kjörinna fulltrúa og starfsmanna út af öðrum verkefnum.
Í Samfélagssmiðjunni er á veggspjöldum hægt að kynna sér ýmislegt varðandi sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogs, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar sem kosið verður um 26. október.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.