- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Símanúmer skrifstofu sameinaðs sveitarfélags er 4 700 700 og er síminn opinn milli klukkan 8:00 og 15:45. Opnunartími skrifstofanna fjögurra er sá sami og verið hefur:
Fyrirhugað er að heimasíða sameinaðs sveitarfélags verði tekin í notkun þegar nafn sveitarfélagsins hefur verið staðfest. Um bráðabirgða síðu er að ræða. Ekki er gert ráð fyrir að loka gömlu heimasíðum Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Hins vegar liggur ekki fyrir með hvað hætti þær verða notaðar til framtíðar, en ljóst er að þeir hlutar sem snúa að mannlífi, samfélagi, myndasöfnum o.þ.h. verða til staðar á gömlu síðunum þar til ákveðið hefur verið hvort og hvernig þeim hlutum verður komið fyrir á nýrri heimasíðu sveitarfélagsins.
Upplýsingar um þjónustu og stjórnsýslu nýja sveitarfélagsins verður fyrst og fremst að finna á tímabundnu sameiginlegu heimasíðunni og verður þeim eingöngu viðhaldið þar.