Rauðakrossdeildir sameinast

Sveinn Kristinsson, formaður Rauða krossins á Íslandi, Sölvi Kristinn Jónsson, formaður Vopnfjaðrard…
Sveinn Kristinsson, formaður Rauða krossins á Íslandi, Sölvi Kristinn Jónsson, formaður Vopnfjaðrardeildar og Ragnhildur Rós Indriðadóttir, formaður Héraðs og Borgarfjarðardeildar, að aflokinni undirskrift.

Rauði krossinn á Vopnafirði hefur verið í viðræðum um sameiningu við deildina á Héraði og Borgarfirði eystra.  Stofnfundur þessarar sameinuðu deildar var haldinn á Bókakaffinu Hlöðum í Fellabæ þann 29. október.

Samþykkt var að nýja deildin heiti Rauði krossinn í Múlasýslu í samræmi við nafngiftir annarra Rauðakrossdeilda á landinu.  Starfssvæði deildarinnar markast af Vopnafirði, Fljótsdalshéraði og Borgarfirði eystra. 

Deildarstjórnin verður fimm manna og allt að fjórir í varastjórn. Þrír stjórnarmenn skulu koma frá Héraði, einn frá Vopnafirði og einn frá Borgarfirði eystra. Varamenn eru boðaðir á stjórnarfundi og hafa málfrelsi og tillögurétt. Varamenn skiptast þannig að tveir séu frá Héraði, einn frá Borgarfirði og annar frá Vopnafirði. Sameiningin gengur í gildi 1. janúar 2019.

Guðný Björnsdóttir frá Landsskrifstofu Rauða krossins og Sveinn Kristinsson, formaður samtakanna, mættu á stofnfundinn ásamt stjórnarmönnum deildanna og sjálfboðaliðum.