Rafmögnuð endurvinnsla í Bónus

Endurvinnslukassinn í Bónus á Egilsstöðum
Endurvinnslukassinn í Bónus á Egilsstöðum

Í desember fór af stað tilraunaverkefni á vegum Umhverfisstofnunar og Úrvinnslusjóðs sem fólst í því að setja sérstaka söfnunarkassa í nokkrar  verslanir á landinu, m.a. Bónus á Egilsstöðum. Kassarnir eru hannaðir til að taka á móti litlum raftækjum, rafhlöðum og ljósaperum.

Markmiðið er að kanna hvort íbúar skili meira magni þegar söfnunin er í daglegu umhverfi þeirra ásamt því að koma þeim skilaboðum til íbúa að þessir hlutir eigi alls ekki heima í almennu rusli.

Nánar má sjá um málið hér á vef Umhverfisstofnunar.