Rafbókasafnið á Bókasafni Héraðsbúa

Forsíða Rafbókasafnins breytist oft í tengslum við það sem er efst á baugi. Svona leit hún út 5. jún…
Forsíða Rafbókasafnins breytist oft í tengslum við það sem er efst á baugi. Svona leit hún út 5. júní.

Í byrjun mánaðar eða 1.júní var ár liðið frá því að Bókasafn Héraðsbúa og notendur safnsins fengu aðgang að Rafbókasafninu.

Í Rafbókasafninu er hægt að nálgast raf- og hljóðbækur en þær eru enn flestar á erlendum tungumálum.  Nokkir lánþegar safnsins hafa nýtt sé þetta með mikilli ánægju og sumir svo mikið að einn þeirra hefur því miður vart sést á safninu síðan.

Það er auðvelt að nýta sér rafbókasafnið. Lánþegi þarf auk tölvu eða snjalltækis að hafa gilt bókasafnskort hjá bókasafninu, aðgangsorð og PIN-númer sem fæst auðveldlega við heimsókn á safnið. 

Í Rafbókasafninu er hægt að velja hvort bók er tekin að láni í 7, 14 eða 21 dag. Bók sem hefur verið tekin að láni skilast sjálfkrafa að lánstíma liðnum og því er engin hætta á dagsektum. En það er líka hægt að skila fyrr.

Annars eru leiðbeiningar og upplýsingar um Rafbókasafnið að finna hér og á vef Borgarbókasafns en Borgarbókasafnið reið á vaðið og hóf útlán á rafbókum í janúar í fyrra. 13 bókasöfn fengu aðgang að Rafbókasafninu þann 1.júní og um haustið fengu öll almenningsbókasöfn í Gegni sem vildu aðgang að safninu.

Allir geta skoðað hvað er að finna í Rafbókasafninu þó þeir séu ekki skráðir inn en til að fá bók lánaða verður viðkomandi að vera með aðgang.