Ráðstefna um atvinnumál á Fljótsdalshéraði

Ráðstefna um atvinnumál verður haldin á vegum Fljótsdalshéraðs fimmtudaginn 12. maí, í Valaskjálf og hefst hún kl. 10.00. Á ráðstefnunni verður athyglinni beint að tækifærum svæðisins og horft fram á við með almennum og sértækum hætti. Fyrirlesarar verða frá atvinnulífinu, stoðstofnunum og samtökum þess auk þess sem tveir ráðherrar munu taka þátt í ráðstefnunni. Að loknum framsögum er gert ráð fyrir umræðum.

Auðlindir og atvinnusköpun

Ráðstefna um atvinnumál á Fljótsdalshéraði, haldin 12. maí kl. 10.00 í Valaskjálf

Dagskrá:
- Sigrún Blöndal, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs / Setning
- Guðmundur Sveinsson Kröyer, formaður atvinnu- og menningarnefndar / Sveitarfélagið mitt
- Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra / Ávarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra
- Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins / Öflugur iðnaður – gott líf
- Ívar Ingimarsson, ferðaþjónustuaðili / Draumalandið Austurland
- Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á Siglufirði / Gömul gildi í nýjum búningi
- Eymundur Magnússon, frumkvöðull og eigandi Móður Jarðar ehf á Vallanesi / Lífræn ræktun í 30 ár

Léttur hádegisverður í boði Fljótsdalshéraðs

- Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra / Ávarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
- Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar / Fjölbreytt tækifæri fyrir íslenska orku
- Garðar Eyjólfsson, vöruhönnuður og fagstjóri við Listaháskóla Íslands / Maður, náttúra, rannsóknir og miðlun
- Arnar Guðmundsson, verkefnisstjóri hjá fjárfestingarsviði Íslandsstofu / Bein erlend fjárfesting og hlutverk landshluta

Að loknum framsögum verða pallborðsumræður.

Allir velkomnir!