Plokkað fyrir Eyþór

Afrakstur plokks
Afrakstur plokks

Laugardaginn 13. apríl ætla íbúar Fljótsdalshéraðs að koma saman og „Plokka fyrir Eyþór“, um er að ræða fjáröflunarviðburð til styrktar Eyþóri Hannessyni, hlaupara og plokkara. 

Eyþór er sem kunnugt er frumkvöðull á Íslandi þegar kemur að svokölluðu plokki sem er iðja sem sameinar holla hreyfingu og ruslatínslu. Eyþór hefur á undanförnum árum lagt mikið á sig við að fjarlægja rusl og fegra nærumhverfi sitt og vakið fyrir það athygli um allt land enda hafa afköstin verið ótrúleg. Hann hefur m.a. hlotið viðurkenningar frá Náttúruverndarsamtökum Austurlands og Umhverfis- og framkvæmdanefnd Fljótsdalshéraðs fyrir framlag sitt til umhverfismála. Eyþór glímir nú við erfið og kostnaðarsöm veikindi og því hafa nokkrir aðilar á svæðinu tekið höndum saman og blása til viðburðarins Plokkað fyrir Eyþór þar sem íbúar eru hvattir til að tína rusl og styrkja Eyþór í leiðinni.

Fyrirkomulagið verður á þann veg að þátttakendur mæta á einn af fyrirfram ákveðnum upphafsstöðum frá klukkan 10:00 á laugardaginn og greiða þátttökugjald að eigin vali. Upphafsstaðirnir verða við Fellaskóla, Vonarland, Egilsstaðaskóla, leikskólann Skógarland, Níuna og Vallaveg (Dagsverk). Fólk gengur, skokkar eða hleypur þá leið og vegalengd sem það kýs og tínir rusl í leiðinni. Klukkan 12:00 hittast þátttakendur við Níuna (Miðvang 1) þar sem boðið verður upp á léttar veitingar, tónlist og skemmtilegheit (fólk er hvatt til að grípa með sér fjölnota bolla að heiman). Þar verður búið að koma upp flokkunaraðstöðu í boði sveitarfélagsins og sjá starfsmenn þess um að fjarlægja ruslið (einnig verður hægt að skilja rusl eftir á upphafsstöðunum).

Hægt verður að fá poka á upphafsstöðunum en það má líka koma með poka að heiman. Þá minna skipuleggjendur á gul vesti eða annan áberandi klæðnað svo þátttakendur sjáumst vel í umferðinni.

Fyrir þá sem ekki komast í plokkið en vilja styrkja málefnið hefur verið opnaður söfnunarreikningur sem Anna Hannesdóttir, systir Eyþórs, heldur utan um. Reikningsupplýsingarnar eru: 0370-13-005545, kt.120164-2019.

Styrktaraðilar viðburðarinns eru Fljótsdalshérað, Fellabakarí, Skógræktin, Héraðsprent, Sjóvá, Íslandsbanki og Hús handanna.

Nánari Upplýsingar má finna á Facebook-viðburðinum Plokkað fyrir Eyþór.