Ormsteiti 2014 - fundur á mánudag

Boðað er til fundar um Ormsteiti 2014 í Grunnskólanum Egilsstöðum kl 20.00 mánudaginn 19.maí.

Leitað er eftir nýjum og ferskum hugmyndum um skemmtiatriði, viðburði og skipulagsmál Ormsteitis 2014.

Óskum eftir hugmyndum og frumkvæði frá íbúum til að gera góða hátíð enn betri.
Hvetjum fyritæki, verslunaeigendur, félagasamtök, íþróttafélög, klúbba og einstaklinga til að mæta og leggja sitt af mörkum og taka þátt.

Ert þú/þið með hugmynd sem þú og/eða fyrirtækið þitt viljið koma á framfæri? Langar þig/ykkur að standa að eða taka þátt í einhverjum viðburði?

Endilega komið hugmyndum á framfæri við framkvæmdarstjóra og stjórn Ormsteitis með því að mæta og vera virkir þátttakendur.

Gríptu tækifærið og láttu í þér heyra á fundi Ormsteitis mánudaginn 19. maí.

Framkvæmdarstjóri og stjórn Ormsteitis