Ormsteiti 2011: Lýst eftir sönglögum

Undirbúningur fyrir Ormsteiti 2011 er kominn af stað og auglýst er eftir lögum í Sönglagakeppnina sem fer fram 17. ágúst. Skilafrestur er 15. júlí 2010.

Lögunum skal skila á geisladiskum til Bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs , Lyngási 12, 700 Egilsstöðum, merkt Sönglagakeppni Ormsteitis. Aðeins eitt lag má vera á hverjum geisladiski og með disknum skal fylgja nafn og símanúmer höfund lags og texta í lokuðu umslagi.

Nánari upplýsingar og reglur keppninnar eru á ormsteiti.is/songlagakeppni.