Opinn fundur Íslandspósts

Forsvarsmenn Íslandspósts halda opinn fund á Egilsstöðum mánudaginn 8. júní kl 17.00 - 18.30. Þetta er liður í fundarröð um stöðu og framtíð póstmála á Íslandi.

Skoðun landsmanna á póstmálum er mjög mikilvæg fyrir fyrirtækið. Vonast er til að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um hvernig póstþjónusta framtíðarinnar eigi að líta út.