Söfnin þrjú í Safnahúsinu á Egilsstöðum opna dyr sínar á sumardaginn fyrsta og bjóða til afmælisfagnaðar frá klukkan 13 til 15.
Árið 2016 er mikið afmælisár í Safnahúsinu á Egilsstöðum. Á árinu eru 60 ár liðin frá stofnun Bókasafns Héraðsbúa, 40 ár frá stofnun Héraðsskjalasafns Austfirðinga og 20 ár frá því að fyrsti áfangi Safnahússins var formlega tekinn í notkun og söfnin þrjú, Bókasafnið, Héraðsskjalasafnið og Minjasafnið, fluttu undir eitt þak.
Í tilefni þessara tímamóta verður opið hús og afmælisfagnaður í Safnahúsinu á sumardaginn fyrsta (21. apríl) frá kl. 13.00-15.00. Þá gefst gestum og gangandi kostur á að kynna sér fjölbreytta starfsemi safnanna og skoða sýningar á öllum hæðum. Fyrrverandi og núverandi starfskonur safnanna flytja ávörp, stúlknakórinn Liljurnar syngur og boðið verður upp á léttar veitingar.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.