Ólafur Bragi Íslandsmeistari

Ólafur Bragi Jónsson frá Egilsstöðum varð Íslandsmeistari í torfæruakstri í sérútbúnum flokki um helgina. Hann hafði sigur í heildarstigakeppni Íslandsmótsins eftir harða keppni við Gunnar Gunnarsson.

Keppnin fór fram í Kollafirði og sigraði Ólafur eftir tvísýna keppni, og varð hann Íslandsmeistari með minnsta mögulega stigamun. Eyjólfur Skúlason, einnig frá Egilsstöðum, varð í öðru sæti í sömu keppni og setti þar með aðalkeppninaut Ólafs í þriðja sætið. Það varð þess valdandi að Ólafur hafði sigur með minnsta mögulega mun. Sannarlega glæsileg helgi í torfærunni hjá Héraðsmönnunum.

Fljótsdalshérað óskar Ólafi til hamingju með glæsilegan árangur.

Svipmyndir og ljósmyndir frá keppninni og mörgum öðrum keppnum í sumar má sjá á www.heimska.com