Ólafur Bragi Akstursíþróttamaður ársins 2013


Egilsstaðabúinn, Ólafur Bragi Jónsson, var valinn Akstursíþróttamaður ársins 2013 hjá Akstursíþróttasambandi Íslands. Guðbergur Reynisson, formaður AKÍS, tilkynnti valið í lokahófi akstursíþróttamanna á laugardaginn og afhenti verðlaunabikar af þessu tilefni.

Ólafur keppir í torfæru í flokki sérútbúinna bíla. Hann byrjaði að keppa árið 2006 á bíl sínum “Refnum” og lauk keppnistímabilinu í 6. sæti. Ári síðar mætti hann og hafnaði í 2. sæti og hampaði svo sínum fyrsta Íslandsmeistaratitili árið 2008. 

Ólafur Bragi varð Íslandsmeistari í flokki útbúinna jeppa í sandspyrnu árið 2010 og 2011 og Íslandsmeistari í torfæru 2011. Ólafur mætti í síðustu tvær keppnir 2012 og vann þær báðar og tryggði sér þannig sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í torfæru í röð.

Á Íslandsmótinu í ár hafnaði hann í öðru sæti en varð Norður-Evrópumeistari í sumar í Skien í Noregi.