Og það varð já!

Íbúar Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar hafa samþykkt tillögu um að sveitarfélögin fjögur verði sameinuð í eitt.

64,7% kjósenda í Borgarfjarðarhreppi samþykktu sameiningu, en 25% voru andvígir henni. Auðir og ógildir seðlar voru rúmlega 10%.

Á Djúpavogi greiddu 63,7% kjósenda með sameiningu og 35,5% gegn henni. 0,8% atkvæðaseðla voru auðir eða ógildir.

Nærri 87% kjósenda á Seyðisfirði voru hlynntir sameiningu, 12,5% voru andvígir og auðir eða ógildir kjörseðlar voru innan við 1%.

Á Fljótsdalshéraði var sameining samþykkt með nærri 93% greiddra atkvæða. Rúmlega 6% voru andvíg og auðir og ógildir seðlar voru ríflega 1%.

Við sameiningu sveitarfélaganna verður til nýtt sveitarfélag með um fimm þúsund íbúa. Sveitarfélagið verður landfræðilega langstærsta sveitarfélag landsins sem nær yfir um 11 þúsund ferkílómetra.

Áætlað er að nýtt sveitarfélag taki formlega til starfa á fyrri hluta næsta árs. Fram að þeim tíma starfa sveitarfélögin fjögur og sinna þeim verkefnum og þeirri þjónustu sem sveitarfélögin bera ábyrgð á.

Sveitarstjórnirnar fjórar munu, í samræmi við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, skipa fulltrúa í sérstaka stjórn til undirbúnings nýs sveitarfélags. Sú stjórn skal semja samþykkt um stjórn og fundarsköp hinnar nýju sveitarstjórnar sem gilda mun fyrir hið nýja sveitarfélag þar til því hefur verið sett sérstök samþykkt. Hún skal einnig taka ákvarðanir um fjárhagsmálefni hins nýja sveitarfélags, taka saman yfirlit yfir allar samþykktir og reglugerðir sem gilda í þeim sveitarfélögum sem sameinuð hafa verið og hefja vinnu við endurskoðun þeirra og samræmingu.

Undirbúningsstjórnin gerir tillögu til sveitarstjórnarráðuneytisins um með hvaða hætti sameining öðlast gildi, svo sem hvenær verður kosið til nýrrar sveitarstjórnar og gildistöku sameiningarinnar. Þær ákvarðanir verða kynntar við fyrsta tækifæri.

Nafn nýs sveitarfélags liggur ekki fyrir. Ný sveitarstjórn mun velja nafnið en líklegt er að haldin verði íbúakosning þar sem valið verður á milli tillagna frá íbúum. Nánar á vefnum svausturland.is

Nánari upplýsingar veita:

  • Aðalheiður Borgþórsdóttir, bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar, í síma 861-7789
  • Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, í síma 895-1448
  • Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri Djúpavogshrepps, í síma 843-9889
  • Jón Þórðarson, sveitarstjóri Borgarfjarðarhrepps, í síma 862-6845