Nýtt jólanámsefni í Minjasafninu

Jólatré í baðstofunni á Minjasafninu en hún er frá bænum Brekku í Hróarstungu
Jólatré í baðstofunni á Minjasafninu en hún er frá bænum Brekku í Hróarstungu

Á dögunum bættist jólaleg viðbót við námsefni Minjasafns Austurlands en þá var hleypt af stokkunum námsefnispakka fyrir yngsta stig þar sem fjallað er um jólasveina og jólahald í gamla dag.

Námsefni Minjasafns Austurlands hefur verið í vinnslu og þróun um nokkurt skeið í samstarfi við Unni Maríu Sólmundsdóttir sem á og rekur námsefnisgagnabankann Kennarinn.is. Um er að ræða 10 námsefnispakka, einn fyrir hvern bekk grunnskólans. Fjallað er um mismunandi efni í hverjum pakka en allir tengjast þeir safnkosti Minjasafnsins eða sögu Austurlands.

„Safnið fékk styrk úr Safnasjóði til að láta vinna efnið en markmiðið verkefnisins er fyrst og fremst að auka við og bæta safnfræðslu Minjasafnsins“ segir Elsa Guðný Björgvinsdóttir safnstjóri. „Efnið er hugsað sem stuðningur við heimsóknir safnið en það var einnig lagt upp með að kennarar sem ekki eiga þess kost að koma með nemendur í heimsókn geti nýtt það við sína kennslu heima í skólastofunni“.

Pakkinn sem hleypt var af stokkunum nú á dögunum ber yfirskriftina Jólahald í gamla daga. Í tengslum við hann býður Minjasafnið upp á skólaheimsóknir þar sem fjallað er um líf fólks og jólahald fyrr á tímum með sérstakri áherslu á þá hluti og athafnir sem jólasveinarnir draga nöfn sín af.
Nánari upplýsingar um námsefnið má finna hér: https://www.minjasafn.is/fraedsla/kennarinn-is

Hægt er að bóka skólaheimsókn á Minjasafnið með því að senda póst á netfangið minjasafn@minjasafn.is eða hringja í síma 471-1412.