Nýr Uppbyggingarsjóður auglýsir styrki

Auglýst hefur verið eftir umsóknum í nýjan Uppbyggingarsjóð Austurlands. Tilgangur sjóðsins er að styrkja menningar- og nýsköpunarverkefni og önnur verkefni á Austurlandi.

Uppbyggingarsjóður Austurlands er samkeppnissjóður sem tekur við af menningar- og vaxtarsamningum Austurlands. Sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja menningar- og nýsköpunarverkefni. Signý Ormarsdóttir er verkefnastjóri sjóðsins. 

Nánar má lesa um sjóðinn hér en vakin er athygli á að fyrr í vikunni var auglýst eftir umsóknum fyrir árið 2015 og er umsóknarfrestur til 12. apríl. Boðið verður upp á vinnustofu þar sem hægt verður að fá aðstoð við gerð umsókna í starfstöð Austurbrúar á Egilsstöðum þriðjudaginn 31. mars kl. 15.00 – 17.00.

Frekari upplýsingar veitir Signý Ormarsdóttir, verkefnastjóri Uppbyggingarsjóðs Austurlands í s. 860 2983 / signy@austurbru.is