Nýr skólastjóri Egilsstaðaskóla ráðinn

Á fundi bæjarstjórnar 4. maí sl. var tekin fyrir umfjöllun fræðslunefndar um ráðningu skólastjóra Egilsstaðaskóla frá og með skólaárinu 2016 - 2017. Þrír umsækjendur voru um starfið.

Bæjarstjórn staðfesti þar ráðningu Ruthar Magnúsdóttur, núverandi aðstoðarskólastjóra, í starf skólastjóra Egilsstaðaskóla og óskaði henni velfarnaðar í nýju starfi.