Nýr atvinnumálafulltrúi

Á fundi atvinnumálanefndar Fljótsdalshéraðs í gær, 23. febrúar, var ákveðið að ganga til samninga við Þórarin Egil Sveinsson, í starf atvinnufulltrúa sveitarfélagsins. Alls bárust 41 umsókn um starfið, en umsóknarfrestur rann út 6. febrúar síðast liðinn.


Þórarinn Egill er með masterspróf á sviði iðnaðar- og matvælaverkfræði. Undan farin ár hefur hann rekið eigið fyrirtæki á sviði ráðgjafar og verkefnastjórnunar. Þórarinn hefur unnið ýmis ráðgjafarstörf fyrir Bændasamtök Íslands, hann var á árunum 2000 til 2003 forstöðumaður Matvælaseturs Háskólans á Akureyri og kennari við skólann. Á árabilinu milli 1979 og 2000 var Þórarinn aðstoðarkaupfélagsstjóri hjá KEA og mjólkursamlagsstjóri á Akureyri. Hann hefur gegn formennsku og stjórnarsetu í ýmsum nefndum og ráðum á vegum fyrirtækja og stofnana.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið atvinnufulltrúa eru að vinna að þróun sérstakra atvinnuverkefna, m.a. á sviði ferðamála, stýra kynningar- og markaðsmálum sveitarfélagsins, vinna að framkvæmd atvinnumálastefnu sveitarfélagsins og vera tengiliður þess við atvinnulífið og stoðstofnanir þess.