Nýr afrekshópur fimleikadeildar Hattar

Nýverið skrifuðu tólf iðkendur fimleikadeildar Hattar, ellefu stúlkur og einn piltur, undir afrekssamning.

Samningurinn er samstarfsverkefni fimleikadeildarinnar, Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands, Menntaskólans á Egilsstöðum og 10. bekkja grunnskóla Fljótsdalshéraðs og meginmarkmið hans að vinna að uppbyggingu iðkandans sem íþróttamanns og einstaklings. Einkunnarorð afrekshópsins eru heilbrigði, heiðarleiki og dugnaður.

Afrekssamningur er gerður í samvinnu við foreldra og fá iðkendur góða eftirfylgni í námi, fræðslu og í íþróttagreininni sjálfri. Í samningnum er tekið á þáttum eins og áfengi, vímuefnum, orkudrykkjum, rafrettum, tóbaksnotkun, virkni í daglegu lífi, námi, jákvæðni, hegðun og umgengni svo eitthvað sé nefnt.

Í þessum hópi eru flottar fyrirmyndir sem hafa æft fimleika til margra ára og er mikilvægt fyrir yngri iðkendur og alla hjá fimleikadeild Hattar að eiga slíka fyrirmyndir.

Til hamingju, öllsömul, með frábæran árangur og megi þetta samstarf ganga sem allra best.

Á myndina vantar tvo iðkendur.