Ný sýning í Safnahúsinu

Á myndinni má sjá safnastjóra Minjasafnsins taka á móti fyrstu opinberu gestunum í morgun.
Á myndinni má sjá safnastjóra Minjasafnsins taka á móti fyrstu opinberu gestunum í morgun.

Söfnin í Safnahúsinu á Egilsstöðum bjóða börn og fullorðna velkomna á sýninguna Nálu. Sýningin er byggð á samnefndri bók eftir Evu Þengilsdóttur. Allir geta sett sitt mark á sýninguna og þannig breytist hún dag frá degi. Ýtt er undir hugmyndaflug og sköpunargleði og gestir hvattir til að snerta, skapa og skemmta sér. Þá hefur Eva sett saman skemmtilegan ratleik sem teygir sig um allt Safnahúsið. Sýningin er því tilvalið tilefni fyrir unga sem aldna til að heimsækja Safnahúsið og eiga þar skemmtilega stund.

Bókin Nála - riddarasaga kom út hjá Sölku í lok árs 2014 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Sagan er ævintýri um valið milli góðs og ills, stríðs og friðar. Innblástur sótti höfundur í íslenskt handverk og sagnahefð.

Sýningin, sem stendur út desember, var fyrst sett upp í Þjóðminjasafni Íslands í janúar, þaðan fór hún í Sögusetrið á Hvolsvelli, síðan í Amtsbókasafnið á Akureyri og er nú sett upp í Safnahúsinu á Egilsstöðum með stuðningi Þjóðminjasafnsins og Barnamenningarsjóðs.

Sýningin er opin á opnunartíma hússins, virka daga frá 09:00-19:00.