Næstu viðtalstímar bæjarfulltrúa

Næstu viðtalstímar bæjarfulltrúa verða fimmtudaginn 19. mars frá klukkan 16.30 til 18.30.

Þá gefst bæjarbúum kostur á að hitta þá Gunnar Jónsson og Stefán Boga Sveinsson, í fundarsal bæjarstjórnar, Lyngási 12, bera upp erindi, fyrirspurnir og ræða þau málefni sem hæst ber hverju sinni. Bæjarfulltrúar skrá niður minnispunkta sem fara fyrir bæjarráð til úrvinnslu.


Íbúar sveitarfélagsins eru jafnframt minntir á íbúalýðræðisvefinn Betra Fljótsdalshérað sem hægt er að fara inn á af heimasíðu Fljótsdalshéraðs eða á slóðinni: www.betrafljotsdalsherad.is.