- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Nú eru mömmumorgnarnir að hefjast á ný eftir sumarfrí. Morgnarnir hafa notið mikilla vinsælda undanfarna vetur en á fimmtudagsmorgnum hafa nýbakaðar og tilvonandi mæður getað hist í Sláturhúsinu og rætt saman um heima og geima, skiptast á ráðum og leyft börnunum að hittast.
Mömmumorgnar eru samstarfsverkefni vegaHÚSSINS og Rauða krossdeildar Fljótsdalshéraðs.
Mömmumorgnarnir eru alla fimmtudaga kl. 10.00 í Sláturhúsinu. Kaffi er á könnunni og leikföng til staðar fyrir börnin.