Minnt á styrki íþrótta- og tómstundanefndar

Frá tálgunarnámskeiði í Safnahúsinu. Mynd: EGB
Frá tálgunarnámskeiði í Safnahúsinu. Mynd: EGB

Íþrótta- og tómstundanefnd Fljótsdalshéraðs auglýsir til umsóknar styrki til íþrótta- og tómstundastarfs með umsóknarfrest til og með 15. október 2019.

Fljótsdalshérað veitir styrki til einstaklinga, hópa, félagssamtaka, fyrirtækja og stofnana til íþrótta- og tómstundatengdra verkefna. Við mat á umsóknum er æskulýðsstefna og jafnréttisstefna Fljótsdalshéraðs höfð til hliðsjónar.

Afgreiðsla styrkumsókna liggur fyrir 10. nóvember 2019. Styrkir eru einungis greiddir út á því ári sem þeir eru veittir og færast ekki á milli ára nema sérstaklega sé um það samið. Næst verður auglýst í febrúar, með umsóknarfrest 15. mars 2020.

Umsækjendur er hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun styrkja íþrótta- og tómstundanefndar. Þar má jafnframt sækja um styrk á rafrænu eyðublaði.