Milljarður rís í íþróttahúsinu Egilsstöðum

Komið er að dansbyltingu ársins sem haldin verður í sjötta sinn, föstudaginn 16. mars, á vegum UN Women á Íslandi. Viðburðurinn fer fram víða um land og einnig í íþróttahúsinu á Egilsstöðum milli klukkan 12 og 13. Allir eru hjartanlega velkomnir til að dansa gegn kynbundnu ofbeldi.

Ofbeldi gegn konum er heimsfaraldur. Milljarður rís er dansbylting sem haldin er víða um heim og með samtakamætti lætur heimsbyggðin til sín taka. Yfir milljarður karla, kvenna og barna kemur saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem allir fá að njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi.
Í krafti #MeToo byltingarinnar hafa konur úr ólíkum geirum stigið fram og lýst því kynbundna ofbeldi og kynferðislegu áreitni sem þær hafa þurft að þola. Byltingin er hafin og ofbeldi í garð kvenna verður ekki lengur liðið.

Í sjötta sinn verður sameinast í yfir 200 löndum og dansað fyrir þolendur kynbundins ofbeldis og þeim þannig sýnd samstaða. Í fyrra komu saman um fjögur þúsund manns á öllum aldri um allt land í tilefni af Milljarður rís. Dansað var af krafti um allt land; í Reykjavík, Akureyri, Seyðisfirði, Reykjanesbæ, Neskaupstað, Höfn í Hornafirði, Egilsstöðum, Hvammstanga og Borgarnesi. Samtakamátturinn var allsráðandi!