Menningarstyrkir: Umsóknarfrestur 16.des.

Umsóknarfrestur um menningarstyrki á árinu 2017 rennur út 16. desember

Atvinnu- og menningarnefnd Fljótsdalshéraðs hefur auglýst til umsóknar styrki til menningarstarfs á árinu 2017, með umsóknarfresti til og með 16. desember 2016. Annars vegar er um að ræða verkefnastyrki og hins vegar styrki til almennrar liststarfsemi. Umsækjendur verða að tengjast Fljótsdalshéraði með búsetu, eða með því að viðburðurinn fari fram á Fljótsdalshéraði eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi á Fljótsdalshéraði. Afgreiðsla styrkumsókna mun liggja fyrir fyrir 1. febrúar 2017.

Umsækjendur er hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun menningarstyrkja Fljótsdalshéraðs á heimasíðu sveitarfélagsins. Þar má jafnframt sækja umsóknareyðublað.

Umsóknir sendist til:
Fljótsdalshérað - Menningarstyrkir
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
eða á netfangið fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is