- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Opinn íbúafundur um mótun menningarstefnu fyrir Fljótsdalshérað verður haldinn þriðjudaginn 3. febrúar kl. 19.30 í Fellaskóla.
Menningarstefnunni er ætlað að draga fram hlutverk, áherslur og aðkomu sveitarfélagsins að menningartengdri starfsemi og listum.
Stefnan er unnin af vinnuhópi í umboði atvinnu- og menningarnefndar Fljótsdalshéraðs.
Allir þeir sem vilja hafa áhrif á mótun stefnunnar eru hvattir til að mæta á fundinn.