Matvælaframleiðsla á Héraði

Miðvikudaginn 6. mars, klukkan 12 - 13 verður haldinn „súpufundur“ um matvælaframleiðslu, á vegum atvinnu- og menningarnefndar Fljótsdalshéraðs, á Hótel Héraði. Fluttar verða tvær framsögur en síðan er gert ráð fyrir umræðum.

Dagskrá fundarins:

Eygló Björk Ólafsdóttir, lífrænn matvælaframleiðandi – Móðir Jörð, Vallanesi.
Tækifæri í grundvallaratriðum?
Meðal annars verður fjallað um sóknarfæri í matvælaframleiðslu á Héraði og hvar tækifærin liggi helst.

Oddný Anna Björnsdóttir, verktaki hjá Matarauði Íslands og sjálfstæður ráðgjafi.
Matvælaframleiðsla - þróun á markaði, tækifæri, að hverju þarf að hyggja.
Meðal annars verður fjallað um hvert stefni þegar um matvælaframleiðslu er að ræða og hvernig best sé að standa að henni.

Umræður og fyrirspurnir

Hægt er að kaupa matarmikla súpu með nýbökuðu brauði sem kostar 1.300  krónur  og fer greiðsla fram við innganginn á fundinn.