Matjurtargarðar til leigu í sumar

Í sumar kemur Fljótsdalshérað til að leigja íbúum matjurtargarða. Um er að ræða 25 fm garða og getur hvert heimili fengið tvo slíka. Leigan verður 1500 krónur á garð (25 fm). Áhugasamir eru beðnir um að senda tölvupóst á freyr@egilsstadir.is Stefnt er að því að úthlutun garðanna hefjist 11. júní, en þeir sem sýna áhuga verða látnir vita þegar að afhendingu kemur.


Skipulags- og umhverfissvið Fljótsdalshéraðs.