Mat á umhverfisáhrifum vegna sorpurðunar

Sorpurðun í landi Tjarnarlands á Fljótsdalshéraði, allt að 68.000 tonn

Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar

Verkís og Mannvit, f. h. Fljótsdalshéraðs, hafa tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um sorpurðun í landi Tjarnarlands, allt að 68.000 tonn.


Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 21. september til 2. nóvember 2012 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Fljótsdalshéraðs og á Bókasafni Héraðsbúa, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.

Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðunum: www.verkis.is og www.fljotsdalsherad.is


Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 2. nóvember 2012 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 með síðari breytingum.