Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands

Göngugarpur í könnunarleiðangri í lýðheilsugöngu í Fellunum í fyrra.
Göngugarpur í könnunarleiðangri í lýðheilsugöngu í Fellunum í fyrra.

Líkt og á síðasta ári mun Ferðafélag Íslands standa fyrir lýðheilsugöngum í september. Verkefnið er unnið í samstarfi við sveitarfélög og ferðafélög um land allt. 

Sem fyrr er það Ferðafélag Fljótsdalshéraðs sem skipuleggur göngurnar sem verða fjölskylduvænar og léttar. Megintilgangur þeirra er að hvetja til útivistar og skemmtilegrar hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu og lífsgæði þeirra sem taka þátt. Farið verður frá skrifstofu Ferðafélagsins að Tjarnarási 8,  klukkan 18 alla miðvikudag í september.

Fyrsta gangan verður gengin 5. september að Grettistaki í Fellum.

Hægt verður að lesa nánar um göngurnar á heimasíðu Ferðafélags Fljótsdalshéraðs og er fólk hvatt til að taka þátt og drífa alla fjölskylduna með.