Ljóð á vegg - skilafrestur nálgast

Minnt er á að skilafrestur til að skila inn ljóðum tengdum verkefninu „Ljóð á vegg“ rennur út 20. apríl.  Konur á Fljótsdalshéraði eru hvattar til að stinga niður penna og senda inn ljóð. Auglýsing frá stjórn verkefnisins, frá 16. mars 2015, er eftirfarandi:

Í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi auglýsir stjórn verkefnisins „Ljóð á vegg“ eftir ljóðum eftir konur á öllum aldri, búsettum á Fljótsdalshéraði, til birtingar á veggjum nokkurra húsa í sveitarfélaginu.

Fyrirhugað er að birta alls tólf ljóð með þessum hætti og mun stjórn verkefnisins velja þau úr innsendu efni. Ljóðin mega ekki vera meira en átta línur, en efni þeirra er frjálst.

Hægt er að senda ljóðin í pósti á Fljótsdalshérað, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir, eða netfangið odinn@egilsstadir.is , með upplýsingum um höfund. Skilafrestur er til 20. apríl 2015.

Atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúi Fljótsdalshéraðs