List án landsmæra 2018 - Aron Kale

Aron Kale tók við tilnefningunni á Kjarvalsstöðum
Aron Kale tók við tilnefningunni á Kjarvalsstöðum

Listamaður List án landamæra árið 2018 er Aron Kale. Þetta kemur fram á Facebooksíðu verkefnisins. List án Landamæra er listahátíð sem fagnar fjölbreytileika mannlífsins. Hún var stofnuð árið 2003.

Aron Kale er fæddur á Egilsstöðum árið 1989. Hann vinnur málverk og blýantsteikningar. Manneskjan og tilveran eru honum oft hugleikin í verkum sínum og notar hann myndlistina sem nokkurskonar úrvinnslu á hversdeginum, segir um Aron á síðu Listar án landamæra. Aron Kale er margt til lista lagt hann hefur komið að leiklist, lagt stund á málun, þá er hann öllum stundum með blýantinn og blokkina uppi við og teiknar í frítíma sínum, tónlistin á hug hans allan og nýtur hann þess að koma fram þar sem hann fær tækifæri til að sýna og leyfa öðrum að sjá og heyra það sem að hann hefur skapað.

Aron stundaði nám við Starfsbraut Menntaskólans á Egilsstöðum og útskrifaðist þaðan 2012. Hann hefur verið mjög virkur þátttakandi í List án landamæra á Austurlandi allt frá árinu og hefur tekið þátt í fjölda samsýninga ásamt því að halda margar einkasýningar. Hann hefur tekið þátt í Lunga á Seyðisfirði og sýnt á samsýningu í Reykjavík. Verk eftir Aron Kale munu prýða allt markaðsefni hátíðarinnar ásamt því sem hann mun halda einkasýningu.

List án landamæra í ár verður haldin dagana 3. - 13. maí. Hér má finna myndir frá því þegar tilkynnt var um listamann Listar án landamæra.