List án landamæra á Austurlandi verður hleypt af stokkunum í Sláturhúsinu menningarsetri á Egilsstöðum fimmtudaginn 27. apríl klukkan 17:00. Margt er á dagskrá en auk sýninga í Sláturhúsinu eru sýningar í Skriðuklaustri, í Gistihúsinu Egilsstöðum, á Hótel Héraði, í Glóð Valaskjálf og í Húsi handanna.
En List án landamæra fer einnig fram á Djúpavogi, Neskaupstað, Seyðisfirði og á Borgarfirði eystra. Allar sýningar á Héraði hefjast 27. apríl og standa til 11. maí.
Opnunarhátíð Listar án landamæra á Fljótsdalshéraði - Frystiklefinn Sláturhúsi Menningarsetri fimmtudaginn 27. apríl klukkan 17:00
Frystiklefinn Sláturhús Menningarsetur
Spuni - Tónlist - DJPartý - Myndlist
Spunahópur frá Stólpa hæfingarstöð í samstarfi við Charles Ross
Tónlistaratriði frá Starfsbraut Menntaskólans á Egilsstöðum
DJPartý - Aron Kale og Ragnar Jónsson
Sýningar í Sláturhúsi Menningarsetri
Endurnýting - Jónína Bára Benediktsdóttir í samstarfi við Evu Hrund Kjerúlf klæðskera
Daníel - Daníel Björnsson í samstarfi við Odd Eystein Friðriksson (Odee) listamann
Bland í poka - Samsýning einstaklinga af Starfsbraut Menntaskólans á Egilsstöðum
Líf í leir og gleri - Samsýning einstaklinga úr Starfsendurhæfingu Austurlands
Lauf í lautu - Samsýning einstaklinga úr Ásheimum mann- og geðræktarmiðstöð
Skriðuklaustur í Fljótsdal
Listamaður List án Landamæra 2017 Gígja Guðfinna Thoroddsen
Gistihúsið Egilsstöðum
Eðvarð Björn Kristjánsson (Eddi) - Röðun í samstarfi við Írisi Lind Sævarsdóttur myndlistarkonu
Samsýning Theodóru Lindar Thorarensen (Tedda) og Sjafnar Sigurðardóttur - Litróf í samstarfi við Írisi Lind Sævarsdóttur myndlistarkonu
Aron Kale - Sjálfsögð saga í samstarfi við Írisi Lind Sævarsdóttur myndlistarkonu
Hótel Hérað
Samsýning Karls Sveinssonar, Kristófers Ástvaldssonar, Kristbjörns Ingibjörnssonar, Daníels Jóhanns Ström og Aron Kale - Timburmenn í samstarfi við Gissur Árnason kennara
Glóð
Stefán Þórormur Magnússon – Hugverk
Hús handanna
Anne Kampp - Sýning á leirlistaverkum unnin út frá íslenskum handritum.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.