LF kallar eftir fólki í Kardimommubæinn

Leikfélag Fljótsdalshéraðs ætlar að setja upp Kardimommubæinn og auglýsir eftir fólki af öllum stærðum og gerðum með allavegana hæfileika og á öllum aldri til að taka þátt í uppsetningunni. 

Áhugasamir eru hvattir til að mæta á fund laugardaginn 19. janúar klukkan 14 í Sláturhúsinu.