Leikskólinn Skógarsel og Hallormsstaðaskóli í eina sæng

Um næstu mánaðarmót munu leikskólinn og grunnskólinn á Hallormsstað formlega sameinast. Leikskólinn Skógarsel verður  þar með ein deild innan Hallormsstaðaskóla. Mikil áhersla hefur verið lögð á samstarf leik-og grunnskólans undanfarin ár og með þessum breytingum gefst tækifæri til að samtvinna nám og leik skólastiganna enn frekar. Samstarf skólanna hefur verið fjölbreytt og má meðal annars nefna útiskóla fyrir fjögurra til átta ára nemendur undir stjórn kennara frá báðum skólastigum. Þá hefur Orkuverið, skóladagheimili nemenda í 1. til 3. bekk, verið flutt í húsnæði leikskólans og fellur þar með inn í dagskipulag leikskólabarnanna. Þessi sameining hefur tekist vel og er óhætt að segja að almenn gleði ríki á meðal barnanna þar að lútandi, sama á hvaða aldri þau eru.