Leikhópurinn Lotta sýnir Hans klaufa

Leikhópurinn Lotta kemur í Egilsstaði  laugardaginn 14. mars og ætla að sýna fjölskyldusöngleikinn Hans Klaufa í Valaskjálf klukkan 11:00 og aftur kl 14:00. 

Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur en hópurinn hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Lotta, sem hefur sérhæft sig í sýningum utandyra, er nú þriðja veturinn í röð komin inn í hlýjuna. Hópurinn setti Hans Klaufa fyrst upp árið 2010, en nú tíu árum síðar verður rykið dustað af þessu skemmtilega verki og fært nýjum og gömlum áhorfendum í glænýjum búningi.

Verkið hefur verið endurskrifað að stórum hluta og þó að sömu skemmtilegu persónurnar prýði það eins og fyrir tíu árum síðan, hefur nýjum ævintýrum og glænýjum lögum verið bætt við söguna.

Í fréttatilkynningu segir áfram: Þessi útgáfa af Hans klaufa er í raun alveg ný saga sem ekki er hægt að finna í gömlu ævintýrunum, þó vissulega beri hún þekkt nafn. Verkið er sannkölluð ævintýrablanda sem sækir mikið af efniviði sínum í sígildu ævintýrin okkar og hentar fyrir allan aldur. Þannig kynnumst við  Öskubusku, stjúpsystrum hennar og prinsi sem breytt verður í frosk. Við stingum okkur á snældu, reynum að sofna með eina litla baun undir 100 ábreiðum og standa í háum turni og láta okkur vaxa hár sem nær alla leið niður á jörðina. Síðast en ekki síst fylgjumst við með ævintýrum hins klaufalega Hans, Hans Klaufa.

Sjón er sögu ríkari! Hittu Hans klaufa, Aron prins, Öskubusku og alla hina vini þína í Ævintýraskóginum í vetur.

Hans klaufi í leikgerð Leikhópsins Lottu
Leikstjórar: Anna Bergljót Thorarensen og Þórunn Lárusdóttir
Höfundar laga og texta: Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen, Gunnar Ben og Snæbjörn Ragnarsson
Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Orri Huginn Ágústsson, Sigsteinn Sigurbergsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir.