- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Frumsýning Fljótsdalshéraðs á hinu afar ærslafulla söngstykki, Allra meina bót, eftir þá Jónas og Jón Múla Árnasyni, verður í Valaskjálf föstudaginn 26. febrúar og hefst sýningin kl. 20.00.
Aðeins verður um eina sýningu að ræða í Valaskjálf en leikfélagið sýnir jafnframt leikritið í Miklagarði 28. febrúar, í Végarði 1. mars, Iðavöllum 6. mars, í Fjarðarborg 8. mars, Brúarásskóla 10. mars, Hjaltalundi 15. mars og í Sláturhúsinu á Egilsstöðum 19. mars.
Hægt er að panta miða Leikfélags á sýningarnar í síma 867-1604.
Leikfélag Fljótsdalshéraðs heldur upp á 50 ára afmæli sitt á þessu ári.