Kynningarfundur vegna fjárhagsáætlunar

Fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs 2015, ásamt þriggja ára áætlun áranna 2016 – 2018 verður kynnt á fundi í fyrirlestrarsal Egilsstaðaskóla (2. hæð) miðvikudaginn 12. nóvember kl. 20:00.
Fjárhagsáætlunin hefur verið tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs, en síðari umræða um hana fer fram í bæjarstjórn þann 19. nóvember nk.

Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér fjárhagsáætlunina og rekstur og stöðu sveitarfélagsins.
Hægt er að nálgast áætlunina hér