Kynningarfundur um tillögur um þjóðgarð á miðhálendinu

Snæfellskáli í Vatnajökulsþjóðgarði
Snæfellskáli í Vatnajökulsþjóðgarði

Umhverfis- og auðlindaráðherra, skipaði síðastliðið vor þverpólitíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar allra þingflokka á Alþingi auk tveggja fulltrúa sveitarfélaga. Þá sitja fulltrúar frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu í nefndinni.

Verkefni nefndarinnar eru m.a. þau að skilgreina mörk þjóðgarðsins og setja fram áherslur um skiptingu landssvæða innan hans í verndarflokka, fjalla um hugsanlegar aðkomuleiðir og þjónustumiðstöðvar, svæðisskiptingu og rekstrarsvæði og greina tækifæri með stofnun þjóðgarðs á byggðaþróun og atvinnulíf. Jafnframt er henni ætlað að gera tillögur að helstu áherslum í stjórnunar- og verndaráætlunum og atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn og lagafrumvarpi um þjóðgarðinn, þar sem m.a. er tekin afstaða til stjórnskipulags þjóðgarðsins.

 Miðvikudaginn 22. ágúst klukkan 15:35-16:35 kynnir formaður nefndarinnar, Óli Halldórsson  verkefni nefndar og svarar spurningum áhugasamra um störf nefndarinnar.

 Fundurinn fer fram á Hótel Héraði og eru allir velkomnir.