Kynningar- og fræðslufundur fyrir byggingarstjóra, hönnuði og iðnmeistara

Miðvikudaginn 18. desember verður tekið í notkun nýtt kerfi sem heldur utan um umsóknir um byggingarleyfi á Fljótsdalshéraði, OneLand Roboot kerfið frá OneSystems. Þennan sama dag verður haldinn kynningar- og fræðslufundur fyrir byggingarstjóra, hönnuði og iðnmeistara á Hótel Héraði klukkan 16:30.

Með tilkomu þessa kerfis þurfa aðilar að baki umsókn um byggingarleyfi, svo sem hönnuðir, byggingarstjórar og iðnmeistarar ekki að koma í afgreiðslu byggingarfulltrúa í sveitarfélaginu með pappíra og skjöl heldur geta þeir sinnt erindum sínum rafrænt.

Nánar um nýtt kerfi:

Hönnuður eða eigandinn sjálfur sem ætla að senda inn umsókn um byggingarleyfi, fara inn á Íbúagátt Fljótsdalshéraðs í gegnum vef sveitarfélagsins, skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og senda umsókn inn með rafrænum hætti.

Umsóknir ásamt teikningum er hægt að senda beint af starfsstöð hönnuða til sveitarfélagsins, tilnefningar um hönnuði, byggingarstjóra og iðnmeistara á verk og staðfesting þessara aðila um að taka að sér verkið, fer alfarið fram með rafrænum hætti.

Þannig þurfa þessir fagaðilar ekki að koma á starfsstöð byggingarfulltrúa til þess að uppfylla og staðfesta starfsskyldur sína, þeir einfaldlega opna símann sinn eða tölvuna þar sem þeir eru staddir hverju sinni og ganga frá öllum tilnefningum og staðfestingum með rafrænum hætti. Yfirferð teikninga og samskipti vegna þeirra við hönnuði verður með rafrænum hætti.

Úttektir geta byggingarstjórar og eða starfsmenn byggingarfulltrúa gert í gegnum app sem er beintengt við OneLand Roobot kerfi Fljótsdalshéraðs. Að úttekt lokinni er hún send inn í málið, allt með rafrænum hætti.

Lykilaðilar að baki hverri umsókn um byggingarleyfi, það er hönnuðir, byggingarstjórar og iðnmeistarar hafa svo greinargott yfirlit yfir athafnir sínar og aðkomu að umsókninni á sinni Íbúagátt hjá Fljótsdalshéraði.