Kynning á Taekwondo

Laugardaginn 22. janúar verður boðið upp á kynningaræfingar í Taekwondo í kjallara Íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum, en síðan er fyrirhugað að Höttur bjóði upp á reglubundnar æfingar í vetur. Það er Gulleik Lövskar, þjálfari hjá Glímufélaginu Ármanni, sem verður með kynningaræfingarnar á laugardaginn kl. 12.00 og kl. 14.00. Allir eru velkomnir að mæta og prófa og kynna sér íþróttina og starfið í vetur. Æskilegt er að mæta í þægilegum íþróttafatnaði.

Nánari upplýsingar gefur Óttar Brjánn í síma 847-1235 eða ottarbrans@gmail.com