Kynning á byggingu hjúkrunarheimilisins á Egilsstöðum

Kynning bæjarstjóra sem haldin var fyrir kjörna fulltrúa miðvikudaginn 4. febrúar 2015 er nú komin inn á heimasíðu sveitarfélagsins og má nálgast hana á hér. Einnig má rata á hana af forsíðu heimasíðu Fljótsdalshéraðs leiðin er: Þjónusta – skipulags / byggingarmál – Bygging hjúkrunarheimilis.

Um er að ræða glærukynningu með tali, þannig að nauðsynlegt er að geta hlustað á kynninguna þegar hún er spiluð í tölvu.

Áhugavert er fyrir íbúa sveitarfélagsins að kynna sér framgang þessarar stærstu framkvæmdar á vegum sveitarfélagsins á síðustu árum og fá þarna yfirlit yfir þetta þarfa verkefni.