- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Fyrirhuguð er lagning ljósleiðara á Fljótsdalshéraði, sem veita á öruggt þráðbundið netsamband í dreifbýli sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að tengja öll lögheimili í sveitarfélaginu. Einnig standi eigendum frístundahúsa og fyrirtækja, sem staðsett eru í dreifbýli Fljótsdalshéraðs, til boða að tengjast ljósleiðaranum. Gert er ráð fyrir að öllum þjónustuveitum verði heimilað að bjóða þjónustu sína á ljósleiðarakerfinu gegn gjaldi.
Auglýst er eftir:
A. Aðila, eða aðilum, sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratengingu eða annarri a.m.k. 100Mb/s þráðbundinni netþjónustu á Fljótsdalshéraði (utan þéttbýlis) á næstu þremur árum á markaðslegum forsendum.
B. Hæfum aðila, eða aðilum, til að taka að sér að byggja upp ljósleiðarakerfi með stuðningi frá opinberum aðilum og e.t.v. reka til framtíðar, komi til þess að enginn aðili svari lið A. hér að ofan. Aðilar sem óska eftir stuðningi skulu uppfylla tilteknar kröfur um fjarskiptaleyfi, fjárhagslegan styrk, reynslu af uppbyggingu og rekstri sambærilegra kerfa, raunhæfa verkáætlun o. fl.
C. Eiganda mögulegra fyrirliggjandi fjarskiptainnviða á Fljótsdalshéraði sem er tilbúinn að leggja þá til við uppbygginguna gegn endurgjaldi sem bjóðist öllum sem lýsa yfir áhuga á uppbyggingu samkvæmt B. hér að ofan á jafnræðisgrundvelli.
Áhugasamir skulu senda tilkynningu til Fljótsdalshéraðs á netfangið egilsstadir@egilsstadir.is fyrir kl. 12:00 þann 17. febrúar nk. Í tilkynningunni skal koma fram nafn og kennitala aðila, auk upplýsinga um ofangreint eftir því sem við á.
Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum og skýringum og skulu slíkar fyrirspurnir sendar á netfangið: egilsstadir@egilsstadir.is
Áhugakönnun þessi er ekki skuldbindandi, hvorki fyrir Fljótsdalshérað né þá sem sýna verkefninu áhuga.