Kjörsskrá og kjörstaðir á Héraði

Auglýsing

 

frá yfirkjörstjórn Fljótsdalshéraðs um framlagningu kjörskrár og kjörstað við forsetakosningar þann 30. júní 2012.

 

Kjörskrá vegna forsetakosninga 2012, munu liggja frammi almenningi til sýnis á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12 á Egilsstöðum á opnunartíma skrifstofu, frá og með miðvikudeginum 20. júní til og með föstudagsins 29. júní 2012.

 

Óskum um leiðréttingar á kjörskrá skal komið á framfæri við bæjarstjóra eins fljótt og unnt er. Tekið skal fram að óheimilt er að breyta kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hafði ekki borist þjóðskrá þann 9. júní 2012.

 

Kjörstaður þann 30. júní 2012 verður í;

 

Menntaskólanum á Egilsstöðum.

Kjörfundur hefst kl. 09.00 og lýkur kl. 22.00

Kjördeildir verða tvær.  Í kjördeild nr. 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum R.  Í kjördeild 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum S - Þ og íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað og í dreifbýli á Fljótsdalshéraði.

 

Á kjördag, meðan atkvæðagreiðsla stendur yfir, mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur sitt í Menntaskólanum á Egilsstöðum.

 

Talning atkvæða fyrir kjördæmið í heild fer fram á Akureyri á vegum Yfirkjörstjórnar Norð- austurkjördæmis.

 

 

Yfirkjörstjórn Fljótsdalshéraðs 20. júní 2012.

 

Bjarni G Björgvinsson

Einar Rafn Haraldsson

Erlendur Steinþórsson